Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Soundeffectar

Nú er kominn þokkalegur snjór hér í borg óttans þannig að ég - á litlu trítlunni minni - spóla aðeins og rassinn á bílnum rennur stundum aðeins til - en bara svona á skemmtilegan hátt!

Ég tók eftir því áðan að ég er farin að gera alltaf smá soundeffecta með þegar ég spóla/slida - þið vitið "rrrruuuuuunnnnnnnnn - squííííííííííík"
Það gerir þetta ennþá skemmtilegra - ég mæli með að fólk prófi það - það virkilega gleður manns litla hjarta í skammdeginu!

Annars er ég búin að leysa ráðgátuna um swat-teamið.
Ráðgátan fólst semsagt í því að ég skildi ekki af hverju swat-teamið var hætt að koma og æfa sig í yfirgefna húsinu á móti mínu.

Ég tók eftir því í gær að snjórinn í portinu mínu var furðulega mikið þjappaður - miðað við að einu bílarnir sem eru að þvælast þarna eru trítlan mín, Yaris, Corolla og þess háttar stubbar.
Svo í morgun - rétt um klukkan átta - enn í skjóli myrkurs - sá ég allt í einu svona vasaljósahreyfingu í portinu svo ég kíkti út.
Viti menn - þar voru vanarnir tveir og út úr þeim æddi heill her af swat-team gaurum með töskur og ýmis konar farangur!
Þetta var aaaaaalveg eins og í bíómyndunum! Ég heyrði reyndar ekki í þeim en ég get ímyndað mér hvað fór fram: "Let's move it people - GO GO GO!!!"
Allir gaurarnir hlupu inn í hús, svo voru ljósin slökkt og bílunum keyrt í burtu - eins og þeir hefðu aldrei komið!

Ætli þeir séu ekki búnir að vera að gera þetta í þónokkurn tíma - þeir vissu að fólk var búið að taka eftir þeim svo þeir eru farnir að koma og fara í skjóli myrkurs.
Og þeir eru hættir skotæfingum - allavega búnir að minnka þær mikið ... ég átta mig ekki alveg á því hvað þeir eru að gera þarna...

Anyways - prófið soundeffectin - mæli með þeim!

Stelpan