Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, desember 12, 2006

Jólafrí

Já við getum orðað það þannig að ég hafi verið í snemmbúnu blogg-jólafríi.
Eða við getum líka orðað það eins og það er - ég er búin að vera löt að blogga!

Allavega - þið hafið svo sem ekki misst af miklu nema þið hafið sérstakan áhuga á heimildaleit og almennri lesningu um mjólkursýrumælingar og fleira í þeim dúr!

Það sem fékk mig til að rjúfa þögnina og blogga á ný var þessi frétt á mbl.is.
Ferlega sætur pínulítill fyrirburi - allt gott með það!

En segið mér eitt: Nú erum við - mannkynið í heild - orðin svona þokkalega þróuð og tæknivædd.
Við sendum ítrekað menn og flaugar út í geiminn og það er alveg hreint með ólíkindum hvað þessum snillingum tekst að gera þarna útfrá.
Við erum búin að hafa Einstein og Newton og alla þessa mega-snillinga.
Við erum búin að finna upp bókstaflega allt - og koma því í handhægar umbúðir!

Segið mér þá eitt - eitt sem ég velti ítrekað fyrir mér þegar ég les greinar eins og þessa - af hverju er enginn búinn að finna upp fyrirbura-bleyjuna?!
Er sú uppfinning bara too much fyrir snillingana hjá NASA?!
Af hverju er þessum oggupínulitlu krílum alltaf stungið bara í næstu pampers bleyju?!
It never ceases to amaze me!

Til stuðnings mínu máli:













I rest my case.

Stelpan