Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, janúar 10, 2007

Marblettur á ilinni

Díses - eigum við að ræða það aðeins!

Ég var semsagt að gera mig klára í morgun, er eitthvað að stússast og sparka létt í tölvu-snúru-hleðslutækið (?) sem liggur á gólfinu.
Ég með mitt eldsnögga viðbragð lyfti fætinum og geng úr skugga um að ég sé ekki að draga einhverjar snúrur með mér.
Svo stíg ég aftur niður af fullum þunga - beint ofan á græjuna - þannig að litli nabbinn sem stendur upp úr fór beint upp í ilina á mér!!!

Guð minn góður - sársaukinn!!!
Ég hálf datt í sófann - nuddandi fótinn eins og ég gat en það virtist bara engin áhrif hafa.
Eitt augnablik hélt ég að það myndi líða yfir mig af sársauka!
Hver vissi að svo mikill sársauki væri mögulegur á þessu svæði - án þess að hreinlega skera það af!

Svo ákvað ég að fara úr sokkabuxunum og líta á skaðann og þá bara sá marblettinn myndast og fótinn bólgna.
Síðan er ég búin að vera alveg nett aum í fætinum í dag. Með smá slátt og seyðing!
Hressandi!
Það eina sem ég get huggað mig við í stöðunni er að þetta var hvorki á hælnum né á táberginu því ef svo hefði verið þá lægi ég bara "veik" heima!

Stelpan