Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, janúar 16, 2007

Netleysi no more

Guð hvað netið er búið að vera óþolandi síðustu daga!
Ég talaði við gaur hjá Hive og hann tók á sig helming af sök en kenndi blessuðum Candat strengnum um restina! Either way - ég er búin að vera svo gott sem netlaus!

Breytir ekki því að síðustu tvö skipti sem ég hef ætlað að blogga - en ekki getað - koma núna.
Það mætti eiginlega líta á þetta sem framhaldsblogg þar sem umræðuefni er annars vegar líkamsmeiðingar og hins vegar draumur!

Í fyrsta lagi:
Fyrir um viku síðan - man ekki hvort það var mánudag eða þriðjudag - þá beit ég í innanverða vörina að framan. Búhú - það var vont - life goes on.
Núna - viku seinna - er ég búin að bíta svo oft í sárið og það er orðið svo bólgið að ég lít út eins og ég hafi verið kýld! Ég er eins og slefandi fábjáni!
Og það er vont að drekka því allt sem kemur við sárið er vont. Að sama skapi er vont að borða.
Það er vont að kyngja - nema með geiflum - því tennurnar koma við sárið!
Það er fáháháránlega vont að bursta tennurnar því: a) tannburstinn rekst í sárið og b) tannkremið mitt er megasterkt!
Já og svo er brjálað vont að nudda saman vörunum til að fá smá líf í þær - en þær eru að skrælna upp í þessari slefandi fábjánastellingu!
To sum up - það er allt vont!
Góðu fréttirnar hins vegar eru að ilin mín hefur náð fullum bata eftir hrakfarirnar í síðustu viku!!!

Í annan stað:
Mig dreymdi verulega fríkí draum um daginn (nóttina) og ég get ekki for the life of me skilið af hverju - ég vona bara innilega að þetta sé ekki forspárdraumur.
Ég var semsagt í einhverjum garði - þetta var einhver svona wildlife garður sem "við Clara fórum alltaf saman í".
Allavega, Clara komst ekki svo ég fór bara ein. Ég er að ganga niður "stíginn" og þá mætir mér tígrisdýr - en í þessum wildlife garði var það bara nokkuð eðlilegt.
Ok, ég vil ekki mæta tígrisdýrinu for obvious reasons svo ég stekk upp á "hólinn" sem var svona einskonar stikkfrí frá rándýrunum.
Nema hvað - mér verður litið til hliðar og viti menn - þar liggur annað tígrisdýr.
Ég lít bak við mig og þar stendur svartur pardus.
Great - nett panik!
Þar sem ég stend og velti fyrir mér möguleikum mínum standa öll dýrin upp og labba í áttina að mér (á þessum tímapunkti eru alls 4 risa kattardýr að stefna á mig) og rétt áður en ég stekk í burtu (átta mig samt ekki á því hvert ég var að stökkva) þá skrikar mér fótur og öll fjögur með tölu stökkva á mig.
Það næsta sem ég veit er að ég vakna á spítalanum - bara frekar ánægð með að vera enn á lífi - en algjörlega tilfinningalaus frá mitti og niður! Verulega óþægileg tilfinning!

Hver sá sem getur ráðið þennan draum - feel free to share!

Og þar hafiði það!

Stelpan