Ostur
Já, draumar eru furðulegt fyrirbæri.
Persónulega þá dreymir mig alltaf - og í flestum tilfellum man ég bullið sem mig dreymir.
Oft hef ég velt því fyrir mér hvort ég ætti að halda draumadagbók - því á ekki löngum tíma gæti ég safnað upp í metsölubók af bulli!
Skemmtilegast við draumana finnst mér þó að fatta af hverju mig dreymdi þá.
Þ.e.a.s. - mig dreymir yfirleitt eitthvað bull í kringum það sem er að gerast í mínu lífi.
T.d. ef ég rekst á gamlan bekkjarfélaga úr grunnskóla er næsta víst að mig mun dreyma einhvern kennara sem við áttum sameiginlegan eða aðra bekkjarfélaga.
Mig dreymdi um daginn að ég væri í stríði og var stödd í kastala. Samt - á einhvern hátt - var ég ekki stödd í kastalanum heldur var þetta einskonar dúkkukastali sem ég var að leika mér með. Svo ákvað Þorsteinn frændi að vera í "hinum" kastalanum og fara í stríð við mig.
Upphófst mikið blóðbað og drama - en samt var þetta einskonar brúðuleikur.
Weird.
Þennan draum var samt auðvelt að ráða - ég var að horfa á Lord of the Rings.
Svo finnst mér það alltaf jafn fyndið að sama hvaða bull mann dreymir - það meikar alltaf jafn ótrúlega mikið sens í draumnum. Og í flestum tilfellum situr bullið eftir í hausnum á manni daginn eftir!
Gott dæmi um það er draumurinn sem mig dreymdi í nótt.
Sagan á bak við hann er að við systur höfum síðustu vikur og mánuði (og sérstaklega yfir jól og áramót) verið einstaklega duglegar að borða osta - enda eru ostar bestir!!!
Nú - mig dreymdi í nótt að vegna gífulegrar sölu á ostum upp á síðkastið væri útlit fyrir að þeir yrðu uppseldir á landinu. Ef svo færi þá ætluðu ostaframleiðendur að hætta að framleiða osta þar sem það einfaldlega borgaði sig ekki - þar sem þeir væru alltaf uppseldir!
Ég tók samstundis þá ákvörðun að hætta að borða osta!!!
Svo áðan þegar ég var að skrifa innkaupalista fyrir Bónus og hugsaði með mér að ég mætti nú alls ekki kaupa ost! Og það tók mig töluverðan tíma að fatta af hverju ég ætlaði ekki að kaupa ost!
Já það er óhætt að segja að stundum sé maður svo sannarlega staddur í ruglinu.
Stelpan

<< Home