Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, janúar 26, 2007

Persónunjósnir?!

Það mætti ætla að Orkuveitan í heild hafi lesið bloggið mitt í gær því það var eins og við manninn mælt - í gærmorgun kom haugur af köllum með alls konar lagnir og dótarí og fóru að vinna í skurðinum - mjög sátt við það!

Að sama skapi held ég að nágrannarnir hafi lesið bloggið því einhver tók sig til og þreif drullufótsporin í tröppunum - einnig mjög sátt við það!

Annars var ég að vinna niðrí Frímó í gær og var ekki komin heim fyrr en um miðnætti.
Nema hvað, ég er komin heim og er eitthvað að gera mig klára fyrir háttinn þá sé að úti við endann á portinu er hvítur sendiferðabíll - með ljósin á og með kveikt ljós inni í bílnum - og það var greinilega einhver hreyfing inni í honum.
Fyrst hélt að þetta væri sjúkrabíll eða löggubíll - en með nánara glápi sá ég að svo var ekki.
Þá hlýtur maður að spyrja sig - hvað er hvítur sendiferðabíll að gera hérna klukkan rúmlega miðnætti?!
Allavega, nennti ekki að spá í því og fór að sofa.

Svo vaknaði ég í morgun - óeðlilega snemma verður að segjast (meira um það síðar).
Ég semsagt fer á fætur um hálf 7 - labba inn á klósett og sé að það er bíll þar sem framkvæmdirnar eru í gangi, alveg upp við bílskúrinn - þannig að ég sé út um eldhúsgluggann greinlega að það eru ljós á honum. Og ég fer og kíki betur en sé náttúrulega ekki rassgat vegna þess að það var dimmt og eina ljósið voru ljósin á bílnum sem skinu nánast beint í augun á mér.
Jæja, ég fer í sturtu og fæ mér að borða og eitthvað og bíllinn ennþá þarna. Svo sé ég akkúrat þegar hann bakkar út og fer og ég get svo svarið það - ef ég ætti að vitna um það myndi ég segja að þetta hafi verið sami hvíti sendiferðabíllinn og var á hinum staðnum í gærkvöldi!!!

Ok - hvítur sendiferðabíll á miðnætti - ég get alveg keypt það.
Hvítur sendiferðabíll kl. hálf 7 inní framkvæmdaporti - ég er ekki að kaupa það!!! (og nei - verkamennirnir byrjuðu ekki fyrr en ég var farin rétt um 8 í morgun svo þetta voru ekki þeir að koma til vinnu).

Stundum þá bara veit ég hreinlega ekki hvað ég á að halda!!!

En já - ég var semsagt vöknuð og komin á fætur rétt fyrir hálf 7 í morgun sem er mun fyrr en ég er venjulega á ferðinni.
Ég var semsagt að mæla kl. 8 í morgun sem þýðir að ég þurfti að vera komin niðureftir svolítið fyrir 8.
Þess vegna stillti ég klukkuna extra snemma svo ég gæti nú snúsað aðeins áður en ég færi á fætur. Svo þegar klukkan hringdi vaknaði ég bara alveg - þurfti ekkert að snúsa svo ég bara dreif mig á lappir!
Svo finnst mér núna - klukkan 11 - eins og dagurinn sé bara farinn að síga á seinni partinn vegna þess að ég er búin að vera vakandi svo lengi! Mér fannst áðan eins og það ætti að vera kominn hádegismatur - leit á klukkuna - rétt rúmlega 10! Ekki alveg að skynja tímann nógu vel!!!

Svo langaði mig svona rétt í lokin að koma á framfæri ótrúlegri óánægju minni með þjónustuna hjá FedEx.
Þannig er mál með vexti að mig vantaði svört stígvél (já mig vantaði þau!!!) svo ég fór á janúarútsölur og fann auðvitað ekki það sem mig langaði í - endaði með því að ég fór á eBay - fann réttu stígvélin og keypti þau.
Ok - pakkinn fór frá USA 7. janúar svo ég ákvað að gefa honum alveg tvær vikur áður en ég færi að eltast eitthvað við hann.
Í gær var pakkinn ekki enn kominn svo ég sendi seljanda póst og bað um sendingarnúmer sem ég fékk sent um hæl.
Ég sló það inn á FedEx heimasíðuna og hvað kemur í ljós - pakkinn er lööööööööngu kominn til landsins og er búinn að sitja - reiðubúinn til afhendingar - í 10 daga hjá þeim!!!!!!!!!!
10 dagar gott fólk!!!
Hann var ekki sendur heim til mín (eins og þeir segjast gera) - ég fékk engan póst eða tilkynningu eða símtal eða neitt (sem þeir segjast líka gera)!!!
Ég fór líka niðrá FedEx og lét greyið afgreiðslustrákinn heyra hvað mér fannst um þetta mál!
Það var nú ósköp lítið sem hann gat sagt - enda kannski ekki honum að kenna - en þessi þjónusta (ef svo má kalla) hlýtur að teljast vafasöm - at best!!!
Ég spurði hann líka hvernig það væri ef ég væri ekki að bíða eftir pakkanum - ætluðu þeir að sitja á honum til eilífðarnóns eða...?! Hann gat eiginlega ekki svarað því heldur.
Það eina sem hann gat sagt að gaurinn sem sá einu sinni um þetta svæði var nýlega rekinn - ætli þetta sé ekki honum að kenna!

Og ég veit - ég veit það eru framkvæmdir í gangi!
En það er hægt að komast meðfram skurðinum (þótt ég kjósi að gera það ekki) og það er hægt að komast inn frá Laugavegi - hurðin þar er opin svo framkvæmdir eru engin afsökun!!!

En - ég fékk skóna - og þeir eru beautiful og það er fyrir öllu!!!!!

Stelpan