Verkamenn frh.
Það endaði semsagt með því að ég bleytti upp í hausnum á mér með ísköldu vatni í gærmorgun - ekki það besta í heiminum en ég lifi með því!
Svo þegar ég kom heim úr vinnunni var heita vatnið nú sem betur fer komið aftur á og það var meira að segja heitt vatn í morgun!!! Ég tók samt enga sjénsa og dreif mig að bleyta á mér hausinn!
En það er fleira sem þessir blessuðu verkamenn gera sem hlýtur að teljast frekar vafasamt - þ.e.a.s. annað en að taka heita vatnið af án þess að spyrja kóng eða prest!
Þeir eru alltaf mættir og byrjaðir um tíu mínútur í 8 á morgnana. Það er náttúrulega bara hið besta mál.
Yfirleitt hætta þeir framkvæmdum einhverntímann milli 4 og 6 - ekki alveg búin að ná þeim tíma nógu vel. En það kemur þó fyrir að þeir haldi áfram eitthvað fram á kvöld og þegar það gerist eru þeir kannski að hætta um hálf 10 leytið.
Þess vegna kippti ég mér ekkert upp við það þótt það væru læti í þeim í gærkvöldi - þessi læti eru ekki það yfirgengileg í íbúðinni minni (ef ég er með svalirnar lokaðar) að það breytir svosem engu fyrir mig.
Svo líður og bíður og það fer að líða að háttatíma hjá mér og ég fattaði - þegar ég var að bursta í mér tennurnar klukkan hálf 12 - að þeir voru ennþá að!!!
Ég stóð úti í eldhúsglugga - með tannburstann í kjaftinum - og fylgdist með klónni (sem rífur allt í tætlur áður en gröfurnar koma og hreinsa) alveg á fullu - klukkan hálf 12!!!
Ok - correct me if I'm wrong - en á það ekki að vera bannað?! Á ekki allur svona iðnaðarhávaði að vera hættur einhverntímann fyrir klukkan hálf 12?!?!?!
Ég veit að þetta truflaði mig þannig séð ekkert - enda eru þeir að vinna alveg lengst frá mér og svefnherbergið mitt er hinum megin í húsinu - en ég er nú heldur ekkert ein í heiminum! Það eru hús hinum megin við götuna frá þeim!!!
Já ég verð að viðurkenna að mér fannst þetta slappt!
Mér er alveg sama þótt þeir séu á einhverju deadline eða eitthvað - það verður að flokkast sem þeirra vandamál - og ég get ekki ímyndað mér að þeir hafi rétt til að færa það vandamál yfir á aðra!
Er líka ekki nógu sátt við Orkuveitugaurana sem eru búnir að grafa upp veginn sem liggur upp að húsinu mínu og gerir það að verkum að ég þarf alltaf að fara út Laugavegsmegin.
Ég skil svosem að það þurfi að laga eitthvað og ég get alveg farið út Laugavegsmegin rétt á meðan þeir gera við - en þeir eru bara ekki búnir að gera neitt í nokkra daga!!! Ég sá þá á föstudaginn - en ég held ég hafi ekki séð þá síðan! Þeir sögðu að þetta ætti bara að taka nokkra daga - en nokkrir dagar geta teygst alveg svakalega ef það er aldrei neitt gert!!!
Hnuss!
Og fyrst ég er byrjuð að kvarta þá get ég allt eins haldið áfram.
Ég kom heim um daginn og þá hafði einhver í húsinu mínu tekið sig til og þrifið ganginn!!! Ég hélt ég yrði ekki eldri - búið að skúra og setja mottu við tröppurnar neðst svo maður geti þurrkað af sér áður en maður heldur upp!
Ég var alveg ofsalega sátt við að sjá þetta framtak!
Svo - daginn eftir fór ég út og þá hafði einhver í húsinu komið heim á þeim allra grútskítugustu skóm sem ég hef séð - ekki þurrkað af sér í nýju fínu mottuna - heldur ætt beint upp tröppurnar og skilið eftir sig feitt moldarskófar í hverri einustu tröppu!!!
Það var framtak sem ég var ekki svo hrifin af!!!
Að því sögðu held ég að ég hafi létt af mér því sem er búið að pirra mig upp á síðkastið.
Takk fyrir mig - bless.
Stelpan

<< Home