Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, febrúar 19, 2007

Rotta

Endanleg staðfesting þess að ég búi í miðbæ Reykjavíkur fékkst áðan þegar ég var að koma heim úr Baðhúsinu.

Vegna framkvæmdanna sem eru í gangi fer ég alltaf út á Laugaveginn og þaðan upp í Baðhúsið.
Svo þegar ég kom heim áðan fór ég sömu leið - inn í gegnum ruslaportið frá Laugaveginu og viti menn - við hliðina á ruslatunnunum lá dauð rotta!
Hressandi!

Ég er ekki alveg sjúr hvaðan hún kom - trúlega hefur hún átt heima í húsunum sem verið var að rífa og verið á vergangi síðan.

Anyway - ef einhver vill dauða rottu þá er hún up for grabs!

Stelpan