Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Valentínus

Ég tók þessa mynd af blómvendinum sem ég fékk sendan áðan:















... eða þannig!
Nei ég er hrædd um að ég hafi hvorki fengið blóm, nammi, kort né annað það sem einkennir Valentínusardaginn!

Og fyrir þá sem ætla að drulla yfir það að Íslendingar skuli yfir höfuð fagna þessum ameríska degi elskenda þá er þetta mín skoðun:
Það eru 365 dagar í (meðal)árinu.
Þar af eru í kringum 30 dagar sem - eru eitthvað! Þar með talið eru allir jóladagarnir, allir páskadagarnir, hvítasunna, gamlárs, bollu/sprengi/öskudagur, bónda/konudagur og allir hinir sem eru merktir sem eitthvað á dagatalið.
Þess vegna finnst mér ekkert að því að bæta örfáum amerískum hátíðardögum inn í dagatalið og gera sér glaðan dag!

Það versta við planið mitt er þegar maður á ekki sætan kærasta á Valentínusardag...
En hey - win some - lose some! Ég get í það minnsta alltaf troðið mig út af kalkún á Thanksgiving!!!

Gleðilegan Valentínusardag öll sömul!!!

Stelpan