Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, mars 07, 2007

Afmælisgjöfin í ár

Fyrir þá uppfinningamenn sem sitja atvinnulausir og verkefnalausir heima hjá sér þá er ég komin með mjög góða hugmynd fyrir þá til að vinna að!

Draumaupptökuvél!!!

Þessi vél myndi taka upp drauma manns svo maður gæti horft á þá aftur seinna.
Ég er að segja ykkur það - þessi græja væri snilld!
Ef ég myndi taka mig til og skrifa bók með nokkrum af mest rugldraumum mínum þá myndi ég bókað vinna einhverskonar bull-bókaverðlaun!

Með þessari græju gæti ég líka komist að því að hverju ég er alltaf að leita í svefni!
Ég er sífellt að standa mig að því að vera að róta í skúffum og undir rúmi og ég veit ekki hvar og hvar - alltaf að leita að einhverju!
Einnig gæti ég fengið svar við því hvað það var sem fékk mig til að fara fram úr rúminu og endurraða öllum fötunum á fatagaurnum mínum! Og taka náttsloppinn minn niður af herðatrénu og leggja hann efst á hrúguna "svo hann væri tilbúinn..."

Já þessi græja myndi sko svara mörgum af lífsins stærstu spurningum!!!

Nú - fyrir utan drauma og fataendurraðanir er mest lítið að frétta af mér annað en tölfræði!
Ef einhver er í vanda með tölfræðina sína ætti ég að geta lagt viðkomandi lið þar sem ég hef nánast ekki gert neitt annað síðastliðna daga og vikur!

Stefni samt að því að fara að endurheimta líf mitt á næstunni þar sem ég er við það að hellast í dimmt tölfræði- og greinalestursþunglyndi!
Hefst endurheimtingin með hátíðlegum hætti á laugardaginn þegar við systur ætlum að halda litríkt-sumar og sól-kokteila partý!

Eftir þónokkra umhugsun er ég að hallast að því að vera í bleikum kjól! Ef það lífgar mig ekki við þá gerir það ekkert!!!

Stelpan