Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, mars 15, 2007

Geðveiki

Já það má með sanni segja að lítið skemmti smáum!
Þegar maður er kominn svona svakalega inn í sig þarf ekki neitt til að gleðja mann!!!

Ég er búin að sitja í allan dag og lesa greinar, yfirstrika það sem er markvert og pikka það svo inn í tölvuna.
Þetta er það sama og ég gerði í gær og daginn þar áður og daginn þar áður og daginn þar áður og ...
you get the picture.

Allavega - ég var að slá inn einhvern texta og ég skrifað óvart "reslut" í staðinn fyrir "result" og ég er að segja ykkur það - ég er ekki búin að geta hætt að hlægja síðustu 5 mínúturnar!
Mér fannst þetta bara of fyndið!
Re-slut!

Guð hvað ég hlakka til að vera búin með þessa ritgerð!

Stelpan