Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, mars 16, 2007

Morgungremja

Á þessum annars ágæta morgni er tvennt sem fer óendanlega í taugarnar á mér.

Í fyrsta lagi:
Er það til of mikils ætlast að í það minnsta ein útvarpsstöð á höfuðborgarsvæðinu spili tónlist á morgnana?!?!?
Þegar ég var að keyra í skólann í morgun voru eftirtaldir hlutir í útvarpinu:
Hlustaðu á hljóðið á FM
Morgunútvarpið á Bylgjunni
Einhverjir leiðindagaurar að tala saman á X-inu
Auglýsingar bæði á Gull-bylgjunni og Létt-bylgjunni

- alla leiðina!!!!!!!

Í framhaldi af síðasta lið má taka það fram að þar sem Gull og Létt eru bæði afsprengi Bylgjunnar - þá eru alltaf sömu auglýsingarnar í gangi á báðum rásum!
Og þeim sem finnst útvarpsstöðvaval mitt glatað - endilega bendið mér á útvarpsstöð sem hlustandi er á!!!

Allavega - þetta útvarpsmál gerði það að verkum að þegar ég kom niðrí skóla var ég nett pirruð og tekur þá við liður tvö í þessari bloggfærslu:
Fólk sem kann ekki að leggja um leið og það kemur hin minnsta snjóföl!!!

Að sjálfsögðu var bílum þannig lagt að allir bílarnir tóku 1 og 1/2 stæði - þannig að hverjir 2 bílar tóku (og taka) 3 stæði.
Nema einn bíllinn! Nei - honum tókst - á einhvern hátt sem ég er ekki enn búin að átta mig nógu vel á - að leggja í 3 stæði!!!
Hann er bæði í "sínu" stæði - svo stendur fremra vinstra hornið inn í stæðið öðru megin og hægra aftur hornið inn í stæðið hinum megin!
Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei séð bíl lagt jafn illa!
Það endaði auðvitað með því að ég bjó mér til stæði á endanum - ekki í fyrsa skipti og alveg bókað ekki í það síðasta!

En - góðu fréttirnar í þessu öllu saman er að ég fæ að lesa greinar í aaaaaaaallaaaaaaaaaaan dag!
-andvarp-

Stelpan