Eurovision part 1
Jæja - það er loksins komið að því! Júróvísjon er í kvöld!
Þ.e.a.s. það Eurovision sem við fáum að taka þátt í er í kvöld! Þrátt fyrir rauða ljónið sem allir Íslendingar elska þá komumst við ekki áfram! Verum hreinskilin - við eigum ekki séns!
Það að Íslendingar skuli ennþá halda í vonina og ímynda sér sigur í Eurovision á bleiku skýi er náttúrulega aðdáunarvert - en - það er kominn tími til að maður sætti sig við staðreyndir og viðurkenni að við fáum aaaaaaaaaldreiiiiiiiiiii aftur að vera með í alvöru keppninni!
Ég man þá tíð - já, ég sagði "ég man þá tíð" - þegar dómnefndirnar sinntu störfum þjóðanna og okkar litla, einangraða þjóð átti smá sjéns - rétt eins og hinar þjóðirnar.
En ég er hrædd um að börnin okkar eigi ekki eftir að alast upp við þann munað og þá gleði sem fylgir því að "fá að vera með" í alvöru keppninni og því á áhuginn á Eurovision smátt og smátt eftir að dvína uns einungis gallhörðustu Eurovision áhugamenn (þ.e.a.s. Páll Óskar) nenna að horfa lengur!
Þetta er mín spá!
Nú - að þessu sjúklega svartsýnislega bloggi loknu vil ég taka það fram að ég styð rauða ljónið af fullum hug, krosslegg fingur og vona að Evrópubúar séu rokkarar inn við beinið og vona að með því að tala svona svartsýnislega sé ég búin að jinxa það að við komumst ekki áfram!!!!
Því mig - rétt eins og alla aðra Íslendinga - dreymir um sigur á bleiku skýi!!!
ÁFRAM ÍSLAND!!!!
Stelpan

<< Home