Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, maí 13, 2007

Eurovision uppgjör

Ok - við vitum öll að það voru kosningar í gær - en um þær verður ekki rætt hér enda er þetta langt frá því að vera staðurinn til þess!

Nei - ég vil ræða mikilvægari hluti - þ.e.a.s. Eurovision!

Það er skemmst frá því að segja að ég var í alla staði ósátt við þetta Eurovision kvöld!

Í fyrsta lagi: Úrslitin
Ég bara hreint og klárt skil ekki hvað fólk sá við þetta lag frá Serbíu!!
Persónulega fannst mér það bara dáldið leiðinlegt og atriðið var langt frá því að vera eitthvað spes!
Nú - og svo eru lög eins og Armenía - leiðindagaur og rautt tré með geðveikt mikið af klósettpappír!!! What's up with that?!?!
Það voru allir sammála því hjá okkur í gær að það væri án efa versta atriði keppninnar! En nei - fólk var bara að kjósa það eins og vitleysingar - 10 stig út um allt!!!
Og frábær lög eins og það þýska fékk nánast engin stig!
Þessi úrslit voru bara svo fáránleg að orð fá því ekki lýst!

Í öðru lagi: Kosningasjónvarpið
Ok - já já - ég veit að það voru kosningar í gær og fyrstu tölur komu klukkan 10 en kommon - mátti það Í ALVÖRU ekki bíða í 5 mínútur?!?!?! Því það var ca það sem eftir var af keppninni þegar var klippt snögglega á og farið í einhverja 10 tíma kosningavöku!
Svona í alvöru - hefði það EINHVERJU breytt ef fyrstu tölur hefðu komið 5 mínútur yfir 10?!?!?!
Anyone?!?!?!

Og í þriðja lagi: Djammið
Við kíktum - að sjálfsögðu - út í gær.
Maður fylgdist með kosningasjónvarpinu og hlustaði á Sylvíu Nótt og Gleðibankann áður en maður fór út en svo þegar niður í bæ var komið var ekki einn einasti skemmtistaður (sem við fórum á og gengum framhjá) sem var að spila Eurovision!!!
Ég átti bara eiginlega ekki orð - svo virðist sem spá mín hér fyrr sé þegar farin að rætast og fólk sé bara hreint og beint hætt að spá í Eurovision!
Allavega - ég var fyrir miklum vonbrigðum með þetta!!!

Ég held að eftir þetta sé það deginum ljósara að maður gerir sér engar væntingar á næsta ári - hvorki um það að fá að vera með né um það að það verði eitthvað Eurovision djamm!
Hnuss!

Stelpan