I told you so
Já það getur vissulega verið byrði að hafa alltaf rétt fyrir sér.
Í ljós kom að ekki aðeins var litla Ísland dissað heldur voru hin skemmtilegustu atriði frá nágrönnum okkar líka dissuð stórkostlega!
Það er alveg með ólíkindum hversu mikið af verulega slæmum lögum fór í gegn! Ég held það sé ekki fjarri lagi að segja að mörg þeirra hafi verið hreint frámunalega afleit - eins og einhver orðaði það svo skemmtilega um daginn!
Annars vöktu kynnar keppninnar athygli mína.
Karlkynnirinn fyrir þær sakir að hann heitir Mikko Leppilampi! Nei, nei - ég grínast ekkert með þetta!
Kvenkynnirinn fyrir að hafa verið í sama kjólnum alla keppnina! Ok, ég veit að þetta voru bara undanúrslitin en róum okkur í nískunni - sumir keppendurnir voru í 3 kjólum!!!
Hún fær samt plús því kjóllinn var bleikur!
En þar sem við fáum aldrei aftur að vera með þarf maður bara að temja sér það að velja sér einhvern annan til að halda með.
Ég er ekki alveg búin að stúdera þetta allt of vel en ég hugsa að ég haldi með Þjóðverjum og jafnvel tannkremstúpunni frá Hvíta-Rússlandi - þeir gætu komið sterkir inn!
En - það er ekkert ákveðið enn - kannski endar mitt atkvæði allt annars staðar á morgun.
Sjáum til.
Stelpan

<< Home