Illa svikin
Já ég er ekki nógu ánægð með Reykjavíkurborg akkúrat núna!
Jú, sjáiði til - Reykjavíkurborg tók upp á því um árið að halda alltaf menningarnótt á afmælinu mínu. Þetta gerir það að verkum að fólk er að mæta seint og illa í afmælið mitt og fara snemma.
Þetta er eitthvað sem ég er ekki ánægð með!!!
En eftir mega-unglingafylleríið og vesenið sem því fylgdi í fyrra var ég búin að heyra oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að það ætti að færa þessa hátíð aftur á sunnudaginn - enda ekkert að því í sjálfu sér.
Þar af leiðandi var ég búin að plana að halda stórafmæli mitt á laugardeginum - daginn fyrir menningarnótt - allir vinna!
En nei - var að lesa það á vef Reykjavíkurborgar að þeir ætla vissulega að halda menningarnótt á laugardeginum og þar með hirða sinn toll af mínum veislugestum!
Hnuss!
Það er ekki laust við að mér finnist brotið á mér!!!
Stelpan

<< Home