Að tala í símann
Hérna niðrí Skógarhlíð þar sem ég læri/vinn allan liðlangan daginn er skúringakona - eða skúrka eins og við kölluðum þær alltaf í Verzló.
Þessi kona sér um almenn þrif hér í Skógarhlíðinni - taka ruslið, skúra og ryksuga, þurrka af - þið kunnið þetta.
Téð skúrka er ekki af íslensku bergi brotin og talar ekki stakt orð í íslensku - fyrir utan að hún er loksins farin að segja "góðan daginn" við mig eftir að ég hef sagt það við hana á hverjum degi í tvö ár eða svo! Húrra fyrir mér!
En svo ég komi mér nú að sögunni sjálfri.
Skúrkan mætir á morgnana og ... ég er ekki alveg viss hvað hún gerir til að byrja með - ég held hún sé bara þarna.
Um 10 leytið fer hún svo og tekur ruslið - við þetta tækifæri býð ég henni alltaf góðan dag.
Að því loknu fer skúrka út í smók og í símann þar sem hún talar og talar og talar og talar og talar...
Manneskjan er í símanum allan daginn!
ALLAN DAGINN!!!
Ég hef oft fylgst með henni og undrast hvað hún sé í alvörunni að tala svona mikið um! Því miðað við túlkun mína á pólsku/rússnesku/eitthvað í þeim dúr er hún alltaf að segja einhverja meiriháttar sögu eða eitthvað ótrúlega mikilvægt.
Svo þegar hún er búin í smók sest hún inn í eldhús og heldur sögunni áfram.
Mér þykir þetta alveg með ólíkindum merkilegt!
Ég er löngu hætt að kippa mér upp við það að hún þrífur aldrei nokkurn hlut - ég bara tek ofan fyrir manneskjunni sem getur bókstaflega talað í símann allan daginn!
Og já - einnig þakka ég fyrir að ég þarf ekki að borga símreikninginn hennar!
Stelpan

<< Home