Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, júní 19, 2007

Góður dagur

Já í dag er sko góður dagur!
Af hverju?! Jú, því í dag er bleikur dagur!

Þó ég sé alveg fylgjandi réttindum kvenna þá finnst mér feministar oftar en ekki fara gróflega yfir strikið og maður á það til að andvarpa og ranghvolfa augunum þegar maður heyrir bullið í þeim!
En - þetta bleika dags ævintýri þeirra gleður mitt litla hjarta mikið og eiga þær heiður skilið fyrir framtakið!

Því hvet ég alla til að klæðast bleiku á þessum drottins dýrðar degi!
Til hamingju með bleika daginn allir saman!!!

Stelpan