Laukur
Ég fór í mat til m&p í gær.
Það sem upphaflega átti að vera lítið fjölskyldugrill breyttist snarlega í stórt fjölskyldugrill þegar það var ákveðið að bjóða öllum "munaðarlausu" frændum okkar í mat - og var það bara hið besta mál.
Nema hvað, ég mæti á svæðið og hjálpa auðvitað til við eldamennsku og fékk í þetta skipti það verkefni að skera niður grænmeti í "gumsið" svokallaða.
Það inniheldur sætar kartöflur, papriku og lauk.
Nú, þar sem það var von á heilum her manns var auðvitað haft nóg af mat og skar ég hreint gríðarlegt magn af grænmeti - þar með talda einhverja 5 lauka (já, ég grét svoldið yfir þeim).
Síðan þessi skurður átti sér stað er ég búin að þvo mér 6 sinnum um hendurnar (já ég taldi) og búin að fara í sturtu!
Það fer því sjúklega í taugarnar á mér að það skuli ENNÞÁ vera lauklykt af puttunum mínum!!!
Það er í alla staði óviðunandi!!!
Þetta er eins og þegar maður vaskar upp með gömlum og sjúskuðum uppþvottahönskum og hendurnar lykta illa allan daginn eftir það!
Eða þegar maður borðar appelsínu!!!!!
Svo - words to the wise - ef stefnt er á að skera meira en einn lauk skulu notaðir einnota hanskar og hlífðargleraugu!
Stelpan

<< Home