Sturta
Ég var að fá í hendurnar heilan bunka af greinum sem ég þarf að lesa svo... ég fór að sjálfsögðu eitthvað að slæpast á netinu!
Ég fór inn á hinn stórskemmtilega vísindavef og sá þar fyrirspurn um vatnsnotkun í baði vs í sturtu.
Þeir segja að almennt sé notað meira vatn í baði en sturtu - en það fari þó eftir lengd sturtunnar og sturtuhausnum.
Svo koma þeir með tilbúið dæmi um hversu mikið vatn væri notað í dæmigerðri sturtu (12 lítrar á mín og 5 mín sturta = 60 lítrar) vs í baði (um 240 lítrar).
Síðan kemur það besta.
Þegar þeir eru búnir að setja fram svona týpískt dæmi þá taka þeir alltaf eitt ótrúlega ýkt dæmi en það var á þessa leið:
"Eldri gerðir sturtuhausa nota þó allt að 24 lítra á mínútu og þá er 10 mínútna sturta orðin álíka vatnsfrek og baðið, en sá tími er líka í lengsta lagi."
...right, 10 mínútna sturta er í lengsta lagi!!!
Nú legg ég það ekki í vana minn að taka tímann á sturtunum mínum - en þegar ég tek mig til og fer í alvöru sturtu þá er hún sko hvergi nálægt því að vera 10 mínútur!!!
Og ég veit að ég er ekki sú eina!!!
Ég held að það sé því óhætt að slá því föstu að hver sá sem skrifaði þetta svar sé karlmaður - og að hann eigi engar dætur!
Stelpan

<< Home