Veðurspá
Sumt fólk (þá er ég að tala um sjálfa mig) horfir sjaldan sem aldrei á fréttir í sjónvarpinu - enda til hvers, maður er hvort sem er búinn að lesa þetta allt á netinu.
Nú, þar sem ég horfi aldrei á fréttir leiðir það af sér að ég sé heldur aldrei veðurfréttir.
Það í sjálfu sér skiptir engu máli því ég skoða alltaf veðurspána á mbl.is hvort sem er.
Svo tók ég eftir því á mánudaginn að bráðabirgðaspáin fyrir laugardaginn var ekki til staðar - það var bara ekki neitt!
(fyrir þá sem ekki þekkja til þá er mbl.is alltaf með spá fyrir næstu 5 daga)
Nú, í gær hefði átt að vera komin inn spá alveg fram á sunnudag (17. júní) en nei - nú voru bæði laugardagur og sunnudagur með enga spá!
Svo þegar ég kíkti á spána í morgun stóð eftirfarandi á mbl.is:
Athugið: Vegna bilunar í tölvukerfi hjá Veðurstofunni eru spákort á mbl.is óvirk. Unnið er að viðgerð sem vonast er til að verði lokið sem fyrst.
Ok - nú veit ég ekki hvað er í kortunum fyrir helgina en miðað við það að mbl.is hreinlega harðneitar að sýna spána - þá lýst mér ekkert á það!
Hæ hó og jibbí jey - eða þannig!
Stelpan

<< Home