Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, ágúst 19, 2007

Afmæli

Já gott fólk, í dag á ég afmæli!
Og það er ekkert smá afmæli - 25 ár komin í reynslubankann!

Annars er sá böggur á þessum annars ágæta afmælisdegi að síminn minn er í einhverri fýlu og hleypir bara smsum af handahófi í gegn!
Er búin að vera að fá sms í dag sem voru send í gær - er ekki búin að fá sum sms sem voru send í gær og fyrradag - og - þau fáu sms sem ég hef fengið í dag koma öll 5 tímum eftir að þau eru send!
Hallæri!
Talaði við einhvern gaur hjá símanum og hann gat voða lítið gert fyrir mig - en hann reyndi, hann má eiga það.

Svo - gegn eigin vilja er ég hrædd um að ég sé í einhverjum tilfellum dónalega afmælisbarnið sem svaraði ekki afmælis-smsinu!

Annars voru nú svo fáránlega margir í afmælisveislunni hér í gær að það eru kannski ekki svo margir eftir að senda kveðju - en þó...
Svo - ef þú sendir mér kveðju og ég svaraði ekki þá biðst ég afsökunar á því og þakka fyrir mig!!!

Stelpan