Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, ágúst 01, 2007

Blogg

Nú er ég ekki búin að blogga í þónokkurn tíma og það er ekki vegna tíðindaleysis nema síður sé!

Nei ég hef komist að þeirri niðurstöðu - eins og svo margir aðrir á undan mér - að það les aldrei neinn þetta blessaða blogg! - nema Gunna!

Veit ekki hvort um er að kenna lélegum penna eða lélegum lesendum...
... ég held ég kjósi að kenna lesendum frekar um þar sem mér finnst bloggið mitt hreint alveg stórskemmtilegt!

Allavega - þið misstuð svosem ekki af miklu - stærsta fréttin þessa dagana eru væntanleg ritgerðarskil.
Ég bara er engan veginn að átta mig á því að þessu muni öllu saman ljúka eftir einhverjar 2 vikur!
Ég sit og hef áhyggjur af "öllu því sem á eftir að gera" - því það hlýtur að vera alveg ótrúlega margt eftir - en í rauninni er þetta allt að smella saman.
Ef guð leyfir verður ritgerðinni skilað innbundinni og algjörlega tilbúinni þann 16. ágúst og ég geri mér hreinlega ekki grein fyrir því hvernig sú tilfinning mun verða! Það verður víst að koma í ljós þá!

Og ef einhver rekur augun í svo mikið sem stafsetningarvillu í ritgerðinni eftir að henni verður skilað þá er viðkomand bannað með öllu að benda mér á það því ég mun að eilífu vera pirruð!

En, í ljósi þess að það les þessa færslu trúlega enginn ætla ég ekki að hafa fleiri orð um það.

Stelpan