Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, ágúst 14, 2007

Elliglöp

Nú vilja flestir meina að ég sé ekkert svo svakalega gömul - but I beg to differ!
25 ára afmælisdagurinn nálgast nú eins og óð fluga og ég hreinlega finn aldurinn hellast yfir mig!

Því til stuðnings fylgir eftirfarandi saga:
Á leiðinni heim úr vinnunni í gær kom ég við í Nóatúni til að kaupa helstu nauðsynjar: skyr, banana, flatkökur o.þ.h.
Að auki vantaði eldhúsrúllur og handsápu inn á bað - svo ég keypti það.

Það var því hreint gríðarlega þungt andvarp þegar ég tók upp úr pokanum heima og fattaði að ég hafði keypt uppþvottalög í staðinn fyrir handsápu!!!

Þar sem ég stóð með uppþvottalöginn velti ég því fyrir mér hvernig í veröldinni þetta hafði gerst!
Ég labbaði inn ganginn í leit að handsápu en labbaði út með uppþvottalög - ferlega ánægð með sjálfa mig að hafa munað eftir því!

Ég held það sé ekki seinna vænna en að fara að panta pláss á Grund því það er klárt mál í hvað stefnir!

Stelpan