Nörd
Ég verð bara að viðurkenna það að ég hreint dauðsé eftir að hafa ekki fylgst með þáttunum Beauty and the Geek.
Þeir eru reyndar sýndir á stöð 2 svo það er ekki alveg mér að kenna.
Það var verið að endursýna þessa þætti á fimmtudagsmorgnum og ég náði lokaþættinum í síðustu viku og "eftir á" þættinum í morgun í Baðhúsinu.
Je - minn!!
Guð hvað þetta var yfirgengilega fyndið!
Á tímum átti ég bágt með að halda mér á brettinu ég hló svo mikið - en þetta er náttúrulega erfitt að því leytinu til að maður getur eiginlega ekki hlegið mikið upphátt, maður þarf svoldið að bæla þetta niðri. Ég vil ekki vera þekkt sem stelpan sem hlær alltaf geðveikt hátt að lélegu sjónvarpsefni í Baðhúsinu!
En anyways - Beauty and the Geek er bara fyndið!
Sumir af þessum gaurum (aðallega einn þó) eru svo ævintýralega miklir lúðar að maður bara gerir sér ekki grein fyrir því að það skuli vera hægt í lifandis lífi!
Og svo voru sumar stelpurnar náttúrulega alveg fáránegir kjánar - en ég trúði því nú svosem alveg!
Annars var boðskapur þessa bloggs ekki meiri - ég bara hvet alla sem tækifæri hafa til að fylgjast með þessum snilldarþáttum.
Stelpan

<< Home