Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Skilaboð

Síðustu vikur er búið að vera hreint og beint brjálað að gera.
Ég er náttúrulega búin að vera að leggja lokahönd á ritgerðina mína blessuðu og hefur það alveg tekið sinn toll!
Svo er ég líka búin að vera að leysa af niðrá Fasteignasölu hjá pabba - þar er búið að vera svo fáránlega brjálað að gera - á tímabili leit út fyrir að það yrði hreinlega uppselt!
Síðan var náttúrulega stórafmæli, Nína að fara til Kína og einhvernveginn allt að gerast!

Þannig að - í öllum æsingnum virðast tveir hlutir alveg hafa farið framhjá mannskapnum!

Í fyrsta lagi - já, ég er búin að skila ritgerðinni - hún er í prentun í þessum töluðu (skrifuðu) orðum!
Svo reyndar, út af öllum æsingnum og öllu því sem er að gera fylgdi því engin sérstök tilfinning að klára báknið og senda það frá mér. Ætli það komi ekki frekar þegar ég verð búin að verja kvikindið! Það er nú ekki komin dagsetning á það en það verður seinnipartinn í september.
Þá ættu allir að vera með það á hreinu!

Nú - hinn hluturinn sem fólk virðist ekki vita nógu vel af er að ég er að fara til Ameríkunnar í fyrramálið!
Engar áhyggjur, ég er ekkert að flytja eða neitt þannig, bara vikufrí með M&P og Elfu frænku!
Lovely!!!
Planið er að þvælast eitthvað um þarna í nágrenni Boston - og svo að fara niður til New York í nokkra daga!!!!!
Veeeeerulega spennandi!
Ég hef aldrei komið til NY og er því megaspennt fyrir þeirri ferð!

Ooooooh - alveg get séð mig í anda trítla um götur New York borgar - í nýju fínu kápunni minni eins og klippt út úr Sex and the City!!!
Spennandi spennandi spennandi!

Stelpan