Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, september 06, 2007

Beam me up Scotty!

Í eitt einasta augnablik hvarflaði að mér að við stæðum undir innrás utan úr geimnum!
En bara í eitt einasta augnablik!

Þegar betur var að gáð kom í ljós að þetta var bara friðar-ljós-súlu dæmið hennar Yoko Ono sem skein þarna langt upp í himinnblámann.
Ég veit ekki alveg hversu hrifin ég er af súlunni - ég sé ekki alveg tilganginn - og sé alls ekki hvernig risa ljóssúla getur verið eitthvað sérstakt friðartákn. Af hverju ekki bara að eyða peningunum í eitthvað annað og viturlegra - eitthvað sem hefur þó ekki sé nema hinn minnsta tilgang.
Nei ég er hrædd um að þetta sé bara ljósmengun og ekkert annað!

En góðu fréttirnar eru að geimverurnar eru ekki lentar - við getum í það minnsta huggað okkur við það!

Stelpan