Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, september 04, 2007

Frökk skúrka og Ameríka

Það er alveg með ólíkindum hvað fólk getur leyft sér!

Ég kom hingað niður í Skógarhlíð áðan eins og svo marga morgna áður og fer inn á "skrifstofuna" mína.
"Skrifstofan" mín er semsagt herbergi sem er sérætlað meistarnáms- og doktorsnemum. Það inniheldur skrifborð, 2 stóla og hillur.
Og þar sem ég er búin að vera hér í tvö ár - og vera eini neminn í þokkabót - þá hef ég komið mér ágætlega fyrir. Bókunum mínum og möppunum er raðað þægilega í kringum mig, síminn er við höndina og viftan á góðum stað. Þetta er allt saman við gluggann og ég sit á þægilegri stólnum af þessum tveim.
Svo er reyndar kominn annar meistaranemi en það er ekkert vandamál - nóg pláss fyrir hana og er hún búin að koma sér fyrir líkt og ég með bækur, blöð og dótarí í kringum sig.

Nema hvað - ég kem inn á skrifstofu sem að þessu sinni er opin - þetta herbergi er alltaf lokað og læst. Í sætinu mínu og við borðið mitt situr skúrkan!
Já, þetta er sama skúrkan - þessi útlenska sem er alltaf að tala í símann!
Það er skemmst frá því að segja að hún á hvorki eitt né neitt að vera þarna inni nema bara ef hún er að þrífa (sem hún hvort sem er gerir ekki)!

Ég stóð í ca 10-15 sekúndur og bara horfði á hana og já - beið eftir því að hún myndi skammast sín og fara - en ónei! Hún fór sko ekki neitt! Hún sat bara í tölvunni og lagði kapal!
Nanna (samnemandi minn) var ekki þarna svo ég bara settist í hennar sæti - ekki alveg að vita hvað ég ætti að gera eða segja - því reynslan hefur sýnt að skúrkan talar ekkert af þeim mannamálum sem eru töluð hérlendis - og hún hreint og klárt vill ekki skilja þig!

Ok - hún var totally out of line en það var annar stóll þarna svo ég settist bara þar og tók upp mitt drasl.
Nema hvað - þá hringir hjá henni síminn - og hún fer að kjafta!
Þá var ég pirruð!!!!!
Ég er inni á "skrifstofunni" minni og það er ekki vinnufriður því skúrkan er að tala í símann!!!!!

Sem betur fer fór hún stuttu seinna því ég var alveg að springa og það er alveg klárt mál að ef hún kemur aftur hingað inn til að gera eitthvað annað en að tæma ruslið - þá fær hún orð í eyra! Hvort sem hún skilur það eða ekki!!!
Og hana nú!!!

Svo er það Ameríkan.
Ég held það þurfi varla að taka það fram að Ameríkan var yndisleg!!!
Það eina sem dró aðeins úr var hvað það var heitt - rúmlega 30° suma dagana - en það er náttúrulega ógeð ef maður er ekki í bikiníi við sundlaugarbakkann!

En við gerðum margt og sáum margt - fórum t.d. til New York - sem var AWESOME!
Vorum þar í 2 sólarhringa og á þeim tíma skoðuðum við Frelsisstyttuna, Ground Zero, Central Park, Empire State, Rockafeller Center, fórum á Broadway sýningu (Hairspray - það var ÆÐI) auk þess sem við röltum endalaust um og skoðuðum - og kíktum að sjálfsögðu í nokkrar búðir!!!

Síðan fórum við upp í sveitina líka - gistum á þessu stóra, fína sveitahóteli.
Þar lentum við í svaka ævintýri - þrumur og eldingar og úrhellisveður - rafmagnsleysi í kjölfarið og heljarinnar vesen - náttúrulega allt gaman bara!

Nú og svo var kíkt í nokkrar búðir til viðbótar!
Eftir það kíktum við í tvær-þrjár búðir.
Og komum svo við í búð á leiðinni heim!!
To sum up - ég keypti mikið!!!
Ég fattaði það ekki fyrr en ég var að pakka ofan í nýja, geðveikt flotta ferðatöskusettið mitt að ég var búin að kaupa svoldið miiikið mikið!! En það er náttúrulega bara jákvætt!

Þeir sem vilja fá nánari ferðasögu og útlenskt nammi (súkkulaði úr Hersey búðinni) eru velkomnir í heimsókn við tækifæri!

Stelpan