Klag
Meira af skúrkunni.
Eftir að hafa rætt málið við Nönnu kom í ljós að þegar ég var í Ameríkunni (um það bil þegar Nanna var að byrja að leggja leið sína hingað niðreftir) var skúrkan ansi oft inní herbergi í tölvunni eða bara almennt að slæpast. En, þar sem ég var ekki á svæðinu þá kunni hún ekki við að vera dónaleg og bara sætti sig við skúrku - þó hún væri að horfa á pólska bíómynd með hljóðið á!
Í gær þegar ég kom niðrí Skógarhlíð situr skúrka - aftur - í stólnum mínum.
Ég bara labbaði inn, tók af mér draslið, kveikti á tölvunni og fór að taka mig til - hún á endanum áttaði sig á því að þetta var mín leið til að reka hana út - og fór.
Í morgun þegar ég kom situr hún - AFTUR - í stólnum mínum! Með lappir uppi á borði að leggja kapal í tölvunni og borða samloku.
Ég gerði það sama aftur - tók af mér draslið, kveikti á tölvunni og fór að taka til draslið mitt.
Og hvað gerir skúrkan - ekkert!
Hún sat bara áfram, með lappir uppá borði, étandi samlokuna í mestu makindum og dundaði sér við kapalinn sinn!! Bara eins og hún væri stödd heima í stofu hjá sér! Og hún sýndi sko engin merki þess að ætla að fara - jafnvel þótt hún sæti Í STÓLNUM MÍNUM!!!!!
Þetta var dropinn sem fyllti mælinn!
Ég gerði það eina í stöðunni!!
Ég klagaði!!!
Ég fór niður - talaði við yfirvaldið - og innan fárra mínútna var búið að reka hana út!
Og hafiði það!!!
Nú er bara að bíða og sjá hvað hún gerir á morgun - því eins og þetta fór í taugarnar á okkur Nönnu þá þótti yfirvaldinu þetta ennþá verra og ég veit ekki upp á hverju verður tekið ef hún heldur áfram uppteknum hætti!
Já þið skuluð bara passa ykkur að halda ykkur á góðu hliðinni hjá mér því eins og glögglega má sjá þá er ég sko ekki yfir það hafin að klaga!!!
Stelpan

<< Home