Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, september 30, 2007

Lífsstílsbreytingar

Ég var að lesa þessa grein á mbl.is og það er ekki laust við að ég hafi staldrað augnablik og hugsað mig um.

Það er semsagt verið að tala um brjóstakrabbamein hjá konum og þær lífsstílsbreytingar sem gætu mögulega minnkað líkur á slíku.
Eðlilega er það eitthvað sem maður ætti að reyna að temja sér enda er krabbamein ekkert grín.

Ég ætla að fá að stunda minniháttar ritstuld og taka bara eina málsgrein beint úr greininni:
"Stofnunin mælir með því að konur drekki minna og að sömu meðalþyngd verði náð og árið 1980, þá er mælt með því að konur noti siður hormónalyf. Stærsti áhættuþátturinn er þó öldrun og er því sagt mikilvægt að konur komi í skoðun reglulega. Þá eru konur hvattar til að gefa börnum sínum brjóst, því slíkt er talið draga úr líkum á brjóstakrabbameini."

Hmmm, athyglivert.

Maður á í fyrsta lagi að ná sömu meðalþyngd og árið 1980.
Ég dreg þá ályktun að það sé verið að tala um meðalþyngd kvenna en ekki bara mína þyngd árið 1980 - en í mínu tilfelli var sú þyngd engin!
Finnst þetta kjánalega að orði komið en ég skil samt hvað er verið að meina - þó það mætti svosem alveg fylgja sögunni hver sú þyngd er svo maður viti hvort maður sé innan eða utan þeirrar meðalþyngdar.

Hins vegar það sem greip auga mitt enn frekar og fékk mig til að hugsa var að stærsti áhættuþátturinn væri öldrun.
Þetta er reyndar eitthvað sem ég vissi fyrir en stoppaði þó við þessa setningu þar sem fyrirsögnin var jú: "Mælt með lífsstílsbreytingum til að minnka tíðni krabbameins."

Nú, ég get drukkið minna, haldið mér í 1980 kjörþyngd, gefið ófæddum börnum mínum á brjóst og reynt að forðast hormónalyf - en þetta eru bara minniháttar áhættuþættir. Aðaláhættan liggur í öldruninni.

Og þá spyr maður sig - hvaða lífsstílsbreytingar vinna á öldrun?
Ég er hrædd um að hver sá sem hafi svarið við þeirri spurningu eigi eftir að verða ríkur maður!
Þó eru allar tillögur vel þegnar!!!

Stelpan/Meistarinn