Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, september 29, 2007

Meistarapróf

Í gær var meistaraprófið mitt.
Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim eftir það var að gera heiðarlega tilraun til að skera mig á púls!

En byrjum á byrjuninni.

Ég byrjaði á að flytja 40 mín fyrirlestur um verkefnið mitt.
Var búin að fara svo oft yfir fyrirlesturinn að ég kunni hann alveg utanað. Og ábendingarnar sem ég fékk í generalprufunni hjálpuðu mér alveg helling.
Þannig að - ég flutti fyrirlesturinn - svoleiðis eins og atvinnumaður!!!
Mér tókst að forðast það að tala of hratt - ég sagði mjög sjaldan "nú..." og orðin voru ekkert að flækjast fyrir mér og koma öfug út!
Satt best að segja held ég að mér hafi bara sjaldan eða aldrei tekist jafn vel til með fyrirlestur!!!

Nú - eftir fyrirlesturinn var ég prófuð.
Þá var ég semsagt spurð spjörunum úr um ritgerðina og verkefnið sjálft.
AÐ SJÁLFSÖGÐU spurðu þeir ekki neinna spurninga sem ég var búin að búast við og undirbúa mig fyrir. Ég var svoleiðis með stútfullan haus af svörum og útskýringum sem ég ætlaði svoleiðis að blow their minds með - en gafst bara ekki færi á!
Er þetta ekki alltaf svona?!?!
En þeir spurðu mig engu að síður helling af spurningum og ég vil meina að mér hafi tekist bara þokkalega til með að svara þeim!
Stundum bara vissi ég ekki svarið þar sem spurningin var út fyrir mitt verkefni - en þá bara sagði ég það hreint út og það var svosem ekkert út á það að setja.
Annars held ég að ég hafi komið bara tiltölulega vel út úr þessu.

Nú... - að prófinu loknu var mér gefin einkunn fyrir frammistöðuna og viti menn - 8,5 var niðurstaðan!!!
Ekki beinlínis hægt að kvarta yfir því!!!

Já, og þetta með að skera sig á púls.
Þegar vörnin var búin fékk ég risastóran og fínan blómvönd. Þegar heim var komið skar ég undan blómunum og setti þau í vatn og það tókst ekki betur til en svo að hnífurinn rann aðeins til og ég rispaði mig - 5 cm rispu á þumal/lófa/úlnliðinn. Svakalega grunnt - rétt ysta húðlagið - en nóg til að ég þurfti plástur.
Og þannig var sú saga!!!

Svo - your's truly er hér með orðinn meistari!!!
Ég þakka allar heillakveðjur og velfarnaðaróskir í minn garð!!!
Satt best að segja er ég ekki alveg búin að átta mig á því að þessum áfanga sé lokið. Hvað tekur svo við í framhaldinu er ekki alveg ákveðið en engar áhyggjur - um leið og ég hef einhverja hugmynd um hvað það verður þá læt ég vita!!!

Stelpan