Að yngjast
Svo virðist sem ég sé enn meira unglamb en mér hefur fundist upp á síðkastið!
Eftir að the big 25 skall á mér hefur mér fundist aldurinn hreint hellast yfir mig!
Allir í kringum mig eru ýmist að gifta sig eða eignast börn (eða sitt annað barn eða jafnvel það þriðja!) og vinkonu minni (sem er ári yngri en ég) var um daginn bent á það af snyrtifræðingi að hún þyrfti að fara að nota augnkrem á nóttunni!!!
Nema hvað - er búin að sitja yfir fyrirlestrinum mínum í morgun og eftir fyrstu yfirferð leyfði ég mér að gera eitthvað uppbyggilegt á netinu svo ég fór inn á B2.
Þar til hægri sá ég auglýsingu fyrir Martini (áfengið) og þar sem ég hélt að áfengisauglýsingar væru bannaðar ákvað ég að smella á linkinn og skoða auglýsinguna.
Þar kemur upp síða þar sem mér er gert að skrá inn fæðingardag, -mánuð og -ár sem og landið sem ég bý í - til að þeir geti staðfest að ég hafi aldur til að skoða auglýsinguna.
Ég skrái mínar tölur samviskusamlega inn og fæ þetta svar:
"Sorry, due to legal restrictions on marketing alcoholic beverages in your country of residence, we are unable to provide you with access to this website."
Svo virðist sem ég hafi ekki aldur til áfengiskaupa hér á landi!
Það þykir mér magnað!
Nú þarf maður bara að fara að fá lánuð skilríki eða gá hvort það geti ekki einhver "reddað" manni fyrir helgina!!!
Stelpan
p.s. Einungis 3 dagar í dómsdag!!!
Stress að nálgast hættumörk!!!

<< Home