Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, október 16, 2007

Jól

Þá er það opinbert - það eru að koma jól!

Það er reyndar komið svolítið síðan ég heyrði fyrstu jólahlaðborðsauglýsingarnar - en rauveruleikinn barði ekki að dyrum fyrr en ég fór í Hagkaup áðan.
Þar er verið að taka upp jólaskraut, jólatréskúlur og -toppa og fleira í þeim dúr.

Óóóóójá!
Hinum megin við götuna - í Rúmfatalagernum - var líka búið að taka upp eitthvað af jóladótaríi.
Greinilegt að það þarf allt að vera komið upp ekki seinna en 2 mánuðum fyrir jól!

En ég kvarta ekki - ég er soddan jólabarn og þessar jólaskreytingar og ljósadýrð gera ekkert annað en að gleðja mitt litla hjarta.
Ég verð meira að segja að viðurkenna það að ég fékk örlítinn jóla-gleði-sting í hjartað þegar ég sá skrautið í Hagkaup!

Svo - þeir sem vilja byrja snemma á jólagleðinni fari í Hagkaup.
Hinir sem ávallt pirra sig jafn mikið á því hvað jóladótið kemur snemma - farið eitthvert annað!

Stelpan