Nágrannar
Ég hata nágranna mína!
Mér þykir leiðinlegt að þurfa að segja það en svona er þetta bara!
Ég er semsagt að tala um fólkið sem býr á hæðinni fyrir neðan mig og þjáist af einhverjum geigvænlegum heyrnar-sjúkdómi!
Á hverju einasta kvöldi - HVERJU EINASTA KVÖLDI - er kveikt á tónlist eða útvarpi og það stillt aaaaaaaalveg í botn.
Tónlistin sem leiðindanágrannar mínir kjósa að hlusta á er eitthvað á þennan veg:
"Jó mother fu**er, nigga, in da house, nigga, yeah, nigga mother fu**er..."
Þið skiljið hvað ég meina.
Þegar þessi svokallaða tónlist er komin í botn þá er titringurinn af bassanum svo mikill að það koma titrings-hringir í vatnsglasið mitt - svona eins og í Jurrasic Park!
Og ég lýg því ekki!!!
Ég hef stundum þurft að setja iPodinn í eyrun því ég er bókstaflega að ærast úr hávaða - samt er heil hæð sem skilur á milli - mig og tónlistina!
Ég bara get ekki ímyndað mér hversu skaddaða heyrn þetta fólk er með!
Og annað!!! Sem pirrar mig sko ekkert minna!
Þetta lið er alltaf á msn og með tölvuna greinilega tengda í hátalarana þannig að þegar einhver signar sig inn, þegar einhver talar við þau eða einhver sendir þeim nudge (sem gerist allt, allt of oft) þá hrekkur maður við eins og einhver hafi læðst aftan að manni og öskrað hressilega!!!
Það kemur meira að segja fyrir að þau signi sig ekki út þegar þau fara að sofa (ef þau þá fara að sofa) og maður er að vakna við msn-læti um miðjar nætur!!!
Og eitt enn!!! Fyrst ég er byrjuð!
Þetta lið getur ekki - fyrir sitt litla, lifandis líf - lagt bíl í bílastæði!!!
Þau leggja bara þar sem bíllinn lendir!!
Guð í upphæðum hvað það fer sjúklega í taugarnar á mér!!!
Nú á fólk eftir að spyrja sig - af hverju fer ég ekki niður og tala við þau?!
Vitiði - ég veit bara ekki hvort ég eigi eitthvað að leggja í það!
Ég nenni í fyrsta lagi ekki að vera leiðindanágranninn "sem er alltaf að kvarta!!!"
Í öðru lagi þá veit ég akkúrat ekkert um þetta lið - en ég útiloka ekki ruglið! Því til stuðnings þá hefur eigandi þessarar íbúðar lagt sig allan fram í hvert skipti til að finna leigjendur sem eru staddir í ruglinu - and then some!!!
Ég veit samt ekki hversu lengi ég endist við þetta ástand! Kvöldhausverkur er farinn að vera daglegt brauð og því miður - það ER bara ekki í boði!
Hvað segiði - hver ætlar að fara í kjallarann og leysa þetta mál fyrir mig?!
Stelpan

<< Home