Stelpan: meisari, jólatré og sauður!
Jú sjáiði til - á laugardaginn var útskriftin mín svo nú er ég formlega orðinn meistari!
Takk fyrir takk!
Ég gerðist meira að segja svo fræg að vera í fréttum sjónvarpsins um kvöldið - að hlusta af mikilli athygli á orð Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands.
Jájá - þegar maður er meistari verður maður víst að hlusta af áhuga á merk orð mikilla manna og kvenna!
Þó þykir mér líklegra að ég hafi verið að fylgjast með táknmálstúlkinum sem stóð fyrir aftan Kristínu rektor - alveg þótti mér merkilegt að horfa á hana!!!
En það er önnur saga.
Nú - jólatré.
Þannig er mál með vexti að á laugardaginn (já, sama laugardag) héldum við heljarinnar Halloween partý þar sem búningur var skylda!
Þar sem geggjaði búningurinn sem ég keypti á ebay skilaði sér ekki á réttum tíma (vegna þess að seljandinn bara fattaði ekki að ég ætlaði að nota búninginn á Halloween) þá þurfti ég að redda mér nýrri búningahugmynd sem og búningnum sjálfum á innan við degi!
Það gekk líka svona svakalega framar vonum og mætti ég galvösk á Halloween sem jólatré!
Ég á eftir að safna saman einhverjum slatta af myndum frá kvöldinu og þegar þær koma mun fylgja smá saga af gangi kvöldsins, en þangað til getið þið tekið forskot á sæluna með meðfylgjandi mynd en þar má sjá jólatré ásamt Wonder Woman (aka Clara).
Loks var það sauðurinn!
Á morgnana þegar ég fer í Baðhúsið tékka ég alltaf ca 3x á því hvort ég sé nú ekki örugglega með lykla.
Þar sem það er kjánalegt og ég gleymi aldrei lyklunum er ég að reyna að venja mig af þessu.
Það heppnaðist líka svona glimrandi vel þegar ég fattaði kl. 6:50 í morgun uppí Baðhúsi að ég var lyklalaus!
Faaaaaantastic!
Svo mamma fékk þann heiður að hendast í föt og út í kuldann með lykla fyrir mig - eina daginn í vikunni sem hún er að vinna eftir hádegi en ekki fyrir hádegi!
Þegar ég var komin niðrí vinnu fattaði ég svo að ég hafði gleymt símanum mínum heima!
Grrrrrreat!
Stundum er bara einhvernveginn þannig dagur allan daginn!!!
...og þannig var sagan af því!
En fyrir þá sem hafa áhuga á skemmtilegum myndum og frumlegum búningum - stay tuned - myndir koma á allra næstu dögum!
Stelpan/Meistarinn/Jólatréð/Sauðurinn

<< Home