Halloween!!!
Jæja - þá er ég loksins búin að setja inn myndirnar mínar frá kvöldinu.
Einnig eru Hrefna&Ingvar og Clara búin að setja myndir á netið - fyrir áhugasama.
Partýið sjálft var náttúrulega ekkert annað en snilldin ein.
Eins og sést á myndunum var íbúðin vel skreytt - köngulóarvefur, blóðslettur og fleira í þeim dúr.
Og búningarnir voru svo sannarlega ekki af verri endanum!
Þar ber helst að nefna: Wonder Woman, Batgirl, Zoolander og Hansel, Indiana Jones og Lara Croft, special agents Mulder & Scully, Lloyd Christmas (úr Dumb and Dumber), Maverick (úr Top Gun), Heimsborgarinn, gíraffi, hippi, sjóræningjar, nornir, djöflar - og margt fleira eins og sjá má á myndunum!
Svo ber auðvitað hæst að nefna jólatréð sem - eins og lesa má úr síðust færslu - ég var!
Svo var kosið um besta búninginn og voru það special agents Mulder & Scully sem hlutu þann mikla heiður og hlutu þau að launum Halloween-farandbikarinn fyrir besta búninginn!
Vúhúúú!!!
Að gríðarlega góðu partýi loknu var haldið í bæinn og ójá - það fóru sko allir í búning!
Það er alveg óhætt að fullyrða að aldrei hafi ég fengið jafn mikla athygli á einu kvöldi!
Þótti fólki hugmyndin sem og framkvæmd hennar alveg feikilega góð og það voru sko ófáar myndirnar teknar af jólatrénu!
Nú - síðan var auðvitað stiginn dans og ég - upplýst jólatré - lýsti alveg upp dansgólfið!
Svo tóku krakkarnir saman höndum og dönsuðu kringum jólatréð!
Hitt fólkið á dansgólfinu stoppaði og velti því fyrir sér hvað það ætti eiginlega að gera - sumir dönsuðu meira að segja með!
Þetta var náttúrulega bara oooooof fyndið!
So to sum up - brjálæðislega vel heppnað kvöld!
Einnig er gaman að segja frá því - eftir að hafa þurft að "halda í mér" í rúma viku - að Hrefna og Ingvar tilkynntu loksins trúlofun sína formlega!!!!!
Jeeeeeeeyyyyyyyy!!
Til hamingju aftur músirnar mínar!!!
Þannig að - ennþá betra kvöld!!!
Já ég er hrædd um að þetta verði seint toppað!
Hins vegar - það sem ég hef engan áhuga á að toppa voru þrifin daginn eftir!!
Þau voru... mikil - látum þá lýsingu nægja í bili!
Stelpan

<< Home