Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, nóvember 05, 2007

Heimsókn

Já það var sko óboðinn gestur heima hjá mér í morgun!

Ég semsagt vakna, fer fram úr og kveiki ljósið.
Ég sá strax útundan mér að það var eitthvað í loftinu - svo ég gáði...
... viti menn - var ekki silfurskottukvikindi að trítla á loftinu mínu!!!!

Ojjjjjjjjjjjjj - oj - oj - oj!!!

Ég veit að ef einhver annar myndi segja þessa sögu kæmi ég með ótrúlega yfirvegaðan fyrirlestur um það hvað silfurskottur eru meinlausar og þær sé víða að finna og bla bla bla!
En - þegar þetta er í svefnherberginu manns þá einhvernveginn lítur maður öðruvísi á stöðuna!

Vinkonan er nú komin langleiðina út í Atlantshaf - en engu að síður vekur það mér ugg að "þar sem er ein, þar er önnur" og hlakka ég því ekki svo mikið til að fara að sofa í kvöld!

Já ég veit ég er að haga mér eins og kjáni! Satt best að segja hef ég mjög gaman að skordýrum og þykja þau afar athygliverð - en einungis þegar þau eru dáin og búið að þræða þau upp á tein - það á ekki við þegar þau eru inni í svefnherbergi hjá mér eitthvað að dunda sér!
Það er ekki í boði!!!

Stelpan