Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, nóvember 10, 2007

Kjánahrollur

Alveg finnst mér þessi umræða um negrastráka eða ekki negrastráka fáránleg!

Ég sem krakki las um litlu negrastrákana 10 og aldrei fór heitið eitthvað fyrir brjóstið á mér né vakti upp einhverja sérstaka kynþáttafordóma eða slíkt!

Þess vegna fékk ég nettan kjánahroll við að lesa þessa frétt.
Mér finnst fólk vera að æsa sig allt allt of mikið yfir allt allt of litlum hlut!

Svona í alvörunni - hefur fólk nákvæmlega ekkert annað til að rífast um og gera verður út af?!
Ég nenni allavega ekki að rífast um svo kjánalegan hlut og lýkur þessari umræðu því hér og nú.

Annars er það að frétta af minni að það er bara brjááááálað að gera!
Surprise surprise!
Það virðist ekki skipta miklu máli hversu mikið maður nær að gera á einum degi - í lok dags er óloknum verkefnum einhverra hluta vegna búið að fjölga!
Ég ætlaði til dæmis að fara snemma heim úr vinnunni í gær þar sem hálsbólgan mín var farin að vera með einhver leiðindi og mig langaði bara að skríða undir teppi með heitt að drekka.
Nei það tókst ekki betur en svo að ég gekk út kl. 19:15 í gærkvöldi eftir týpískan 10 tíma vinnudag!
Er líka búin að sitja - sveitt - við að fara yfir skýrslur frá hádegi í dag - einhverja 4 tíma eða svo því ég náði ekki að klára það í vikunni eins og planið var!
Svo - hér með leiðréttist sá misskilningur sem sumt fólk hefur lifað í um að þegar maður er búinn að útskrifast sé maður nánast bara kominn "í frí"!

Varðandi umrædda hálsbólgu þá hófst hún bara sem minniháttar kitl á miðvikudaginn en er búin að vera að sækja á af krafti, sérstaklega síðastliðinn sólarhring.
Skemmst frá því að segja að ég hef akkúrat engan tíma til að vera lasin núna og er því að belgja mig út af sólhatti, vítamínum, hóstasaft, heitu tei og fleira í þeim dúr.
Ég vil meina að með þeim aðgerðum hafi mér tekist að koma í veg fyrir meirháttar veikindi og vona að sama skapi að hálsbólgan verði að miklu leyti farin á mánudag - en þá þarf ég að fara á Laugarvatn að halda fyrirlestur!
Fyrirlestur = raddleysi ekki í boði!

Svo - ef einhver lumar á skyndilausn við hálsbólgu þá er sá hinn sami beðinn um að gefa sig fram!

Stelpan