Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, nóvember 19, 2007

Undarlegt hátterni kvenna í Baðhúsinu

Um daginn opnaði nýtt og betra Baðhús.
Í sjálfu sér er þetta alveg sama Baðhúsið en búningsklefinn og afgreiðslan eru ný.
Það eru svosem bæði kostir og gallar við þetta nýja Baðhús en það er ekki umræðuefni dagsins.
Það sem mér liggur á hjarta að þessu sinni eru konurnar í Baðhúsinu - nokkar þeirra að minnsta kosti.

Nýji sturtuklefinn í Baðhúsinu er einfaldur - þetta er bara einn klefi - 4 sturtur á hægri hönd, 4 sturtur á vinstri hönd og 2 á veggnum beint á móti. Fyrir utan sturtuklefann eru svo snagar fyrir handklæði. Mjög simpelt.

Það eru nokkrar konur - fleiri en ein og fleiri en tvær (sem ég hef tekið eftir) og alltaf sömu konurnar sem haga sér - að mínu mati - afar einkennilega að sturtu lokinni.
Þær semsagt sturta sig, skola af sér svitann, þvo sér um hárið o.þ.h.
Að sturtu lokinni slökkva þær á sturtunni, labba fram, ná í handklæðið sitt, koma aftur inn í sturtuklefann, fara undir sturtuna sem þær voru í - og þurrka sér þar.
Þetta þykir mér undarlegt hátterni - þó ekki sé meira sagt!

Svo er það þannig að maður er kannski í sturtunni við hliðina á viðkomandi og þarf alveg að passa sig að skvetta ekki á manneskjuna sem er að þurrka sér!
Og - það sem verra er - maður kemur í sturtu og einhver er að þurrka sér undir einni sturtunni þá þarf maður að bíða eftir að viðkomandi klári til að fá sturtuna!!!
Ég reyndar hef ekki lagt það í vana minn að bíða - ég dónast til að biðja þær um að færa sig - og finnst það eiginlega bara allt í lagi!

En svona í alvöru - getur þetta talist eðlilegt sturtuhátterni?!

Stelpan