Í aðdraganda jólanna
Nú - þar sem ég er formlega orðin meistari finnst mér vel við hæfi að deila ögn af visku minni með hinum almenna borgara.
Eftirfarandi lista rakst ég á uppi í Skógarhlíð. Þetta er listi sem ég hef reyndar séð áður en nú get ég staðfest - sem meistari - að allt sem þar stendur er vissulega satt og rétt. Þessi atriði eiga sérstaklega við á þessum árstíma og því er gott að hafa þau í huga.
Njótið!!!
Stelpan

- Matur sem maður borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur.
- Þegar maður borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem maður borðar umfram hina.
- Matur sem neytt er af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur.
- Því meira sem maður fita þá sem maður umgengst daglega - þeim mun grennri virðist maður sjálfur.
- Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur, hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.
- Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur því þær molna úr þegar bitið er í þær.
- Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum og innan úr skálum eða það sem ratar upp í mann á meðan maður eldar inniheldur ekki kaloríur vegna þess að það er liður í matseldinni.
- Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta, næpur = hvítt súkkulaði).
- Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar.
Njótið!!!
Stelpan

<< Home