Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, desember 17, 2007

Vika í jól

Ég er öll í myndböndunum þessa dagana.

Í þetta skipti er það hin klassíska jólaauglýsing frá Kók sem alltaf vekur hinn sanna jólaanda.



Stelpan

föstudagur, desember 14, 2007

Fagur söngur

Það yljar manni á illviðrisdögum sem þessum að hlusta á fagran jólasöng.

Því ætla ég að deila þessu myndbandi með ykkur.
Eflaust hafa margir heyrt lagið áður en það er enginn annar en stórvinur minn hann Eric Cartman úr South Park sem hér syngur fyrir okkur "O Holy Night".

Myndbandið sjálft er svosem ekkert til að hoppa hæð sína yfir - en söngurinn er fagur!
Njótið!



Stelpan

miðvikudagur, desember 12, 2007

Í aðdraganda jólanna

Nú - þar sem ég er formlega orðin meistari finnst mér vel við hæfi að deila ögn af visku minni með hinum almenna borgara.

Eftirfarandi lista rakst ég á uppi í Skógarhlíð. Þetta er listi sem ég hef reyndar séð áður en nú get ég staðfest - sem meistari - að allt sem þar stendur er vissulega satt og rétt. Þessi atriði eiga sérstaklega við á þessum árstíma og því er gott að hafa þau í huga.
  • Matur sem maður borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur.

  • Þegar maður borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem maður borðar umfram hina.

  • Matur sem neytt er af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur.

  • Því meira sem maður fita þá sem maður umgengst daglega - þeim mun grennri virðist maður sjálfur.

  • Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur, hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.

  • Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur því þær molna úr þegar bitið er í þær.

  • Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum og innan úr skálum eða það sem ratar upp í mann á meðan maður eldar inniheldur ekki kaloríur vegna þess að það er liður í matseldinni.

  • Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta, næpur = hvítt súkkulaði).

  • Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar.
Ég vona að þessi staðreyndalisti gagnist fyrir jólin!
Njótið!!!

Stelpan

mánudagur, desember 10, 2007

Þakkir

Ég vil tileinka þessa bloggfærslu mínum ástkæru, yndislegu og frábæru frændum sem lögðu mér lið við sjónvarpsburð hér um daginn.

Af gríðarlegum hetjuskap, dug - og umfram allt - feiknalegri karlmennsku báru þeir sjónvarpið mitt nýja heimila á milli (eða út í bíl og úr bílnum inn á nýtt heimili).
- og fóru létt með það!

Fyrir það fá þeir þakkir!
Kæru frændur... Þorsteinn og Hörður... takk!!!

Stelpan

fimmtudagur, desember 06, 2007

Sjónvarp

Að þessu sinni eru tvær fréttir sem snúa að sjónvarpsmálum heimilisins.

Í fyrsta lagi.
Pabbi tók þá ákvörðun um daginn að nú yrði hann bara að fara að kaupa nýtt, stærra og betra sjónvarp svo þau hjónakornin fóru og keyptu 47" risa flatskjá sem fyllir nú út í ca helming stofunnar.
Þar af leiðandi "þurftum" við systur að hjálpa gamla settinu að losna við hitt sjónvarpið svo það var ættleitt niður á Laugarveg.
Svo - það er komin nýr og betri kassi heim til mín. Fyrir utan svona smáatriði eins og að þetta sjónvarp sé stærra og betra en það gamla þá er ég einkar hrifin af þeim valmöguleika að fjarstýringin virkar á þessu sjónvarpi - það gerir fjarstýringin á gamla sjónvarpinu nefninlega ekki!
Þannig að mikil sjónvarpsgleði hefur gripið um sig í fjölskyldunni!

Nú - hin sjónvarpsfréttin mín er sko ekki minni.
Eins og flestir ættu að vita bilaði sjónvarpsloftnetið í húsinu í ágúst og hefur verið bilað síðan - þ.e.a.s. það hefur ekki verið í boði nein sjónvarpsútsending síðan í ágúst.
Þetta hefur lítil sem engin áhrif á mig þar sem ég horfi yfirleitt alltaf á flakkarann minn en á hann fylli ég með efni sem ég sæki - að sjálfsögðu á löglegan hátt - á netið.
Nema hvað - nú hefur einhver nágranninn fengið sig fullsaddan og ákveðið að hann ætlaði ekki að missa af jóladagskrá sjónvarpsins því þegar ég prófaði að kveikja á digitalinu í gær þá bara virkaði það! Greinilega búið að laga loftnetið!
Húrra húrra!

Svo - nú er ég bæði með nýtt sjónvarp með fjarstýringu sem virkar OG möguleikann að horfa á það sem er í sjónvarpinu!
Þetta þykja mér fréttir!!!

Stelpan